Fyrirtækið

Sólpallar ehf var stofnað árið 1999.

Frá upphafi höfum við sérhæft okkur í sólpöllum og skjólveggjum og búum því yfir mikilli og góðri þekkingu á þessu sviði. Einnig höfum við kappkostað að skila fallegu handbragði og vandaðri vinnu eins og viðskiptavinir okkar geta borið vitni um.

Á heimasíðunni er aðeins að finna lítið brot af því sem við höfum haft fyrir stafni í gegnum tíðina og er það á engan hátt tæmandi fyrir það sem hægt er að gera. 

Til að hafa samband getur þú sent okkur tölvupóst.